|
Kæru Smaladrengir
Stjórn Smaladrengja hefur náð afar hagstæðum samningi við N1 um afslátt af eldsneyti og vörum sbr. eftirfarandi. Við hvetjum félagsmenn til að notfæra sér þessi kostakjör. Athugið að þessi kjör gilda um öll eldsneytiskaup bæði á bíl og hjól. Það er um að gera að koma þessum kjörum til annarra fjölskyldumeðlima og styrkja þannig rekstur félagsins.
N1 býður félagsmönnum smaladrengja skagafirði eftirfarandi tilboð: • Eldsneyti, alls 8 króna afsláttur: – 5 kr af DÆLUVERÐI – 2 kr í formi safnkortspunkta • Rekstrarvörur á þjónustustöðvum: – 12% afsláttur + 3 % í formi safnkortspunkta Ekki punktar á tóbak, matvörur, símakort, happadrætti og fl. • Bíla og rekstrarvörur í verslun: - 10-30% + 3% í punktum Ath þegar verslað er í verslun ekki bensínstöð. Gefa upp kennitölu og afsláttur er sóttur og kemur fram á nótu. Til að nýta sér afsláttinn þá verða starfsmenn að vera með viðskiptakort eða greiðslulykil. Sótt er um á www.n1.is hópanúmer 310 Ef starfsmenn eiga lykil eða viðskiptakort fyrir, þá þarf að senda línu á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
með kennitölu og kjör viðkomandi verða uppfærð .
hJólakveðja
Stjórnin
Félagsmenn Smaladrengja Viðskiptakjör hjá N1
Gasolía og bensín Afsláttur af díeselolíu og bensíni á þjónustustöðvum miðast við að greitt sé með annað hvort; - Viðskiptakorti N1 (reikningsviðskipti) tengdu Safnkorti N1 eða - Greiðslulykli N1 (tengdum debet- eða kreditkorti) sem tengd hafa verið Safnkorti N1: Afsláttur er kr. 7,00 per ltr m. vsk frá dæluverði eins og það er á hverjum tíma hjá seljanda. Afsláttur skiptist í; sérstakan afslátt af dæluverði kr. 5,00 per ltr og safnkorstpunkta kr. 2,00 per ltr. Til viðbótar þessum afslætti rennur 1 kr. af hverjum keyptum lítra til styrktar félaginu sjálfu og uppbyggingu þess.
Grunnverð er hið sama um allt land en dæluverð getur verið mismunandi ef t.d. um tímabundin tilboð er að ræða og miðast afsláttur ætíð frá því dæluverði sem er á viðkomandi dælu hverju sinni.
Smurolía Afsláttur af smurolíu er 15% Afsláttur af vinnu við smurþjónustu á þjónustuverkstæðum seljanda er 15%. (Til einstaklinga eru 3% af afslættinum í formi safnkortspunkta)
Hjólbarðar Afsláttur af hjólbörðum er á bilinu 12-15% mismunandi eftir vöruflokkum. Afsláttur af vinnu við hjólbarða á þjónustuverkstæðum seljanda er 15%. Afsláttur af dekkjageymslu er 15%. (Til einstaklinga eru 3% af afslættinum í formi safnkortspunkta)
Bíla- og rekstrarvörur Afsláttur af bíla- og rekstarvörum er u.þ.b. 10-30% í verslunum seljanda, mismunandi eftir vöruflokkum. (dæmi: bremsur 20%, bílperur 18%, síur 30%, rafgeymar 18%, bón og hreinsivörur 20%, ljósabúnaður 18%, pappírsvörur 15%, rafhlöður 20%, vinnufatnaður 15%) Afsláttur af vinnu á verkstæði seljanda Funahöfða (ísetningar tækja, radíoviðgerðir, mótorhjólaviðgerðir. o.fl.) er 10%. (Til einstaklinga eru 3% af afslættinum í formi safnkortspunkta)
Mótorhjólavörur Kaupendur fá 15% afslátt af Nítró vörum í verslunum seljanda s.s. fatnaði, aukahlutum, varahlutum o.fl. (mótorhjól, fjórhjól, vespur, Jet-Ski o.s.fv. eru undanskilin). (Til einstaklinga eru 3% af afslættinum í formi safnkortspunkta)
Viðkomandi fer inn á www.n1.is og sækir um Viðskiptakort N1 (reikningsviðskipti) eða Greiðslulykil N1 ( staðgreiðsluviðskipti) og slær inn á umsóknina hópanúmer 310
Kennitala viðkomandi gildir í N1 verslunum, smur- og dekkjaverkstæðum og má greiða með hvaða greiðslumiðli sem er. Hægt er að greiða með safnkorti á öllum sölustöðum N1 og nýta þannig uppsafnaða safnkortspunkta (1 punktur = 1 kr.) ásamt því að í sérstökum safnkortstilboðum býðst viðskiptavinum enn betri nýting punkta. Nánari upplýsingar má nálgast í þjónustuveri N1 í síma 440-1100 eða með tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|