logo

Innskráning




Heim
Alþjóðlegi "Hjólað" í vinnunna dagurinn (International Ride to Work Day" Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 17. Júní 2010 16:44

Hjólað“ í vinnuna dagurinn er alþjóðlegur viðburður sem haldinn er um allan heim þriðja mánudag í  júní ár hvert. Markmið dagsins er að minna á að mótorhjól eru hagkvæmari og umhverfisvænni kostur sem ferðamáti til og frá vinnu. Mótorhjól og vespur eyða mun minna eldsneyti, slíta gatnakerfinu umtalsvert minna og taka minna pláss í umferð og á bílastæðum svo eitthvað sé nefnt. Á mánudaginn kemur 21. Júní mun mótorhjólafólk um allan heim nota mótorhjól eða vespur sem farartæki til og frá vinnu, Sniglar hvetja allt mótorhjólafólk á Íslandi til að taka þátt og nota hjólið til og frá vinnu þennan dag.  Á heimleiðinni á milli 17:00 og 18:00 er tilvalið fyrir þá sem eru í Reykjavík að koma við á Ingólfstorgi og sýna framtakinu lið og vera með á hópmynd.

 - að „hjóla“ í vinnuna er skemmtilegt.
 - að „hjóla“ í vinnuna skapar minni umferð og einfaldar bílastæða mál.
 - að „hjóla“ í vinnuna brennir minna eldsneyti en fólksbíll.
 - að „hjóla“ í vinnuna stuðlar að því að athygli mín og orka er í hámarki.
 - að „hjóla“ í vinnuna mengar minna en að fara á bílnum.
 - að „hjóla“ í vinnuna hefur minni áhrif á vegakerfið.
 - að „hjóla“ í vinnuna skilar mér í og úr vinnu á ánægjulegan hátt.
 - að „hjóla“ í vinnuna sýnir að mótorhjól er betri valkostur sem farartæki í borgarumferð.


www.sniglar.is
  –  www.ridtowork.org

 
Ferð á Akureyrir 17. júní Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 16. Júní 2010 08:10

Jæja þá er loksins komið sumar og við fögnum því með ferð á Akureyri.

Þann 17. júní verður haldið til Akureyrar kl 11:00 frá N1 í Varmahlíð á bíla-og hjólasýningu, vonum við að það sjái sér sem flestir fært að koma með okkur. Við verðum að berja saman hópinn og fjölmenna á Akureyri, við viljum einnig benda ykkur á að snúa saman bökum og safnast saman á Siglufirði og Blönduósi.

Svo vill stjórnin minna á Lummudaga sem verða haldnir á Króknum laugardaginn 26. júní.

Stjórnin

 
Hjólabræður heimsækja Krókinn. Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 31. Maí 2010 21:17
Fimmtudaginn 3. júní koma 14 félagar úr Hjólabræðrum á Krókinn. Þeir félagar eru á hringferð um landið  og óska eftir að hitta Smaladrengi á N1 kl. 18:00. Smaladrengir eru hvattir til að fjölmenna á N1 og taka vel á móti þessum köppum. 
 
Hópakstur á Lummudögum laugardaginn 26. júní Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14. Júní 2010 22:12
Lummudagar á Sauðárkróki hefjast föstudaginn 25. júníAf því tilefni munu Smaladrengir, ásamt Vélhjólaklúbbi Skagafjarðar, efna til hópkeyrslu laugardaginn 26. júní sem hefst á N1 kl. 11:00.  Hópakstrinum líkur við Maddömmukot þar sem hjólunum verður stillt upp til sýnis fyrir gesti og gangandi.  Þessi viðburður markar svo opnun á markaði sem þar verður haldinn. Allt hjólafólk, sem því fær við komið, er hvatt til að taka þátt í þessum viðburði.
 
Auglýsing frá Grindjánum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 28. Maí 2010 09:16
Sjóarinn síkáti laugardaginn 5. júní

Hópkeyrsla Grindjána
Mæting á bílaplaninu við Bláa Lónið kl 14.

Lagt verður af stað kl.14:30 og ekið inn í Grindavík, hjólum lagt á planinu hjá N1 til sýnis fyrir gesti.

Í boði N1 verður fyrir hjólafólk grillaðar pylsur og gos  að keyrslu lokinni.
Vonumst til að sjá sem flesta.
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 3 af 18

Atburðardagatal

<<  September 2010  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Myndasyrpur


Skoða hittni innihalds : 62745

© 2010 Smaladrengir
Allur réttur áskilinn.