logo

Innskráning




Heim
Afsláttur hjá Honda umboðinu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Nóvember 2009 19:01

Smaladrengir geta fengið 10% afslátt af vörum úr verslun hjá Honda umboðinu í Vatnagörðum gegn framvísun á félagsskírteini.  Félagsmenn eru hvattir til að nota þennan afslátt.

 
Kraftur- útivist og sport Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 02. Nóvember 2009 21:02

Kraftur, útvistar- og sportsýning fer fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki laugardaginn 14. nóvember. Þar verður hægt að sjá farartæki af ýmsum gerðum auk þess sem Skotfélagið Ósmann sýnir byssur og leyfir gestum að skjóta af boga. Smaladrengir munu verða þar með sýningu á fararskjótum sínum og kynningu á félagsskapnum.  Allt áhugafólk um útivist og sport er hvatt til að mæta. Aðgangseyrir er aðeins kr. 1.000.  Sjá nánar á:

http://www.feykir.is/kualubbi/wp-content/uploads/2009/10/kraftur2009.pdf

 
Bolir og vesti til sýnis og sölu á Króknum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 02. Október 2009 19:59

Kæru Smaladrengir

Um helgina verður hægt að máta boli og vesti merkt Smaladrengjum hjá Páli Stefánssyni að Grenihlíð 10. Þar verður einnig tekið á móti pöntunum.  Síminn hjá Páli er 453-6770 og farsímanúmer 858-9225. Smaladrengir í Skagafirði og á Blönduósi eru hvattir til að nota tækifærið til að skoða flíkurnar leggja inn pantanir.

 
Útivistarsýning Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 09. Október 2009 20:44

Kæru Smaladrengir

Fyrsta eða annan laugardag í nóvember stendur til að halda útvistarsýningu í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.  Hugmyndin er að stefna þangað helstu klúbbum og félagasamtökum sem hafa útivist af einhverju tagi að markmiði.  Smaladrengjum er boðin þátttaka þar sem okkur gefst tækifæri til að kynna starfsemina og sýna fákana. Þarna yrðu sýndar myndir frá starfsemi félagsins og spurningum svarað.  Selt verður inn á sýninguna til að hafa upp í kostnað, en markmiðið er að hún standi réttu megin við núllið.

Fulltrúi Smaladrengja lýsti yfir áhuga á þátttöku með fyrirvara um veður og færð. Hugmyndin er að mæta með sem flest hjól á svæðið, en það ræðst að sjálfsögðu af veðráttunni. Ef færð leyfir ekki akstur er ljóst að flytja þarf hjólin á kerru og kem ég þá að erindinu sem snýr að því hvort áhugi er meðal félagsmanna á þátttöku og ef svo er, hvort  einhverjir hafa yfir að ráða kerrum sem hægt er að nota til flutninga.

Það væri óneitanlega gaman að taka þátt í þessari frumraun, en hugmyndin er að halda svona sýningu annað hvert ár ef vel tekst til. Hitt er svo annað mál að þetta er alveg háð vilja félagsmanna og árstíminn er ekki sá heppilegasti fyrir okkur hjólafólk.

Ég bið ykkur um að senda línu til mín á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða formanninn á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. þar sem þið segið okkur hvernig ykkur líst á þetta.  Gott væri að fá þessar upplýsingar fyrir miðvikudaginn 14. október, en annar fundur verður haldinn fimmtudaginn 15. okt.

Kveðja

Keli # 19.

 
Vörur Smaladrengja Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 30. September 2009 20:33

Nú er búið að semja um merktar vörur og hér eru verðin í eftirfarandi:

Pólóbolir: Stærðir S-M-L-XL-XXL kr. 3.000

Langerma: Stærðir S-M-L-XL-XXL kr. 2.500

Endursk.vesti: Stærðir S/M - L/XL - XXL kr. 1.600

MYNDIR HÉR

Svo er bara að hringja í 899 2052 eða senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og panta!

Allar stærðir eru komnar nú þegar í hús en í takmörkuðu magni.

Það er bið í næstu pöntun og verður hún ekki framkvæmd fyrr en að pantanir liggja fyrir.

Svo fyrstur kemur fyrstur fær....

kv.

Gjaldkeri

 

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 9 af 18

Atburðardagatal

<<  September 2010  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Myndasyrpur


Skoða hittni innihalds : 62747

© 2010 Smaladrengir
Allur réttur áskilinn.