Return to Ferðaáætlanir

Ferðaáætlun 2016

Ferðáætlun sumarsins 2016.

Legg ég til að félagar sameinist á eftirtöldum stöðum í upphafi allra ferða.
Akureyri N1 á Leirum
Dalvík Olís planið
Ólafsfjörður Bensínstöð N1
Siglufjörður Olís planið
Hofsós KS planið
Sauðárkrókur N1 planið
Varmahlíð KS planið
Blönduós N1 planið
Skagaströnd Olís planið

Ferðaáætlun Smaladrengja árið 2016

Sumardagurinn fyrsti 21. apríl

Safnast saman á planinu við KS Varmahlíð kl:13:30. Gísli Prestur með hugvekju eins og tíðkast hefur undanfarin ár. Þaðan verður hjólað saman út á Krók þar sem boðið verður upp á kaffi og lummur hjá maddömunum við Minjahúsið. Nánar síðar á www.smaladrengir.is og Facebook síðu Smaladrengja

Maí

Sunnudagurinn 1. maí. Hópkeyrsla Snigla í Reykjavík. Mæting hjá ?????? kl: ????? nánar á www.sniglar.is Þeir sem ætla suður á fimmtudegi, sjá nánar auglýsingu á miðvikudagskvöldi. Þeir sem ekki fara suður, en vilja hjóla, mæti á N1 Sauðárkróki kl: 13:00. Þaðan verður hópkeyrsla. Þeir sem ætla samdægurs dugar ekki annað en fara snemma t.d.kl: ??????

Fimmtudagurinn 5 maí uppstigningardagur. Hjólatúr ef veður leyfir. Nánar auglýst á www.smaladrengir.is og Facebook síðu Smaladrengja

Laugardagurinn 28. eða sunnudagurinn 29. maí. Tröllaskagatúr um hvítasunnu. Blönduós – Sauðárkrókur – Hofsós – Ketilás – Siglufjörður – Ólafsfjörður – Dalvík – Akureyri og þaðan heim um Öxnadalsheiði. Veljum daginn eftir veðri Nánar auglýst síðar á www.smaladrengir.is og Facebook síðu Smaladrengja

Júní

Laugardagurinn 5. júní. Óvissuferð. Nánar auglýst deginum áður áwww.smaladrengir.is Ath. Sjómannadagurinn er sunnudaginn 7. júní.

Föstudagurinn 17. júní. Hóphjólaferð um Skagafjörð þar sem byrjað verður í Varmahlíð kl: 13:30 og endað á Sauðárkróki með hópkeyrslu um bæinn. Eða haldið til Akureyrar um hádegi á bíla-og hjólasýningu Akureyringa sem stendur til kl: 17:00.

Júlí
Fimmtudagur 1. júlí til sunnudags 3. júlí Landsmót Bifhjólafólks 2016 verður haldið fyrstu helgina í júlí. Goðar Bifhjólaklúbbur sjá um Landsmót að þessu sinni. Mótið verður haldið á Iðavöllum, ca. 11 km innan við Egilsstaði. Sjá nánar á www.sniglar.is

Laugardagurinn 10. júlí. Óvissuferð. Nánar auglýst á www.smaladrengir.isdeginum áður.

Laugardagurinn .? júlí. Matur og menning á Blönduósi. Hjólasýning á Blönduósi þar sem Smaladrengir koma á sínum hjólum. Nánar auglýst áwww.smaladrengir.is fyrr í vikunni.

Mærudagar á Húsavík ???.júlí.
Bæjarhátíðin Mærudagar er haldin á hverju sumri á Húsavik og fer hún fram síðustu helgina í júlí. Hátíðarsvæðið er við höfnina, dagskráin er fjölbreytt og bæjarbúar taka virkan þátt m.a. með skreytingum á bænum í hverfalitlum. Nánar auglýst á www.smaladrengir.is fyrr í vikunni.

Laugardagurinn ??. júlí. Hjóladagar á Akureyri á vegum Mótorhjólasafns Íslands og Tíunnar. Sjá nánar á www.motorhjolasafn.is og nánar auglýst síðar á www.smaladrengir.is

Ágúst

Föstudagurinn 29. júlí til mánudagsins 1. ágúst. Verslunarmannahelgin. Hvað um Síldarævintýrið á Sigló eða aðra viðburði um helgina? Það er nóg um að vera, nánar auglýst á www.smaladrengir.is

Laugardagurinn 6. ágúst. Undirbúningur fyrir Fiskidaginn mikla 2016 er í fullum gangi. Fiskisúpukvöldið er föstudaginn 5. ágúst og Fiskidagurinn mikli sjálfur laugardaginn 6. ágúst.
Laugardagurinn 20. ágúst. Óvissuferð nánar auglýst á www.smaladrengir.is

September

Laugardagurinn 3. sept. Ljósanótt í Reykjanesbæ. Nánar auglýst áwww.smaladrengir.is sjá dagskrá á www.ljosanott.is

Kveðja frá ferðanefnd, með von um gott hjólasumar.
Guðmundur R. Elmar S. og Svavar

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/ferdaaaetlanir/ferdaaaetlun-2016/

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.