Aðalfundur 2021

Aðalfundur Vélhjólafélags Smaladrengja verður haldinn kl 18:00 föstudaginn 7. Maí í Smalakofanum, klúbbhúsi okkar að Borgarteig, en gengið inn Borgargerðismegin.
Förum eftir sóttvarnarreglum og reynum að virða fjarlægðarmörk og andlitsgrímur eins og unnt er. Vegna samkomutakmarkana biðjum við ykkur um að skrá ykkur á fundinn með því að senda nafn, netfang og símanúmer á smaladrengir@gmail.com.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

Kosning fundarstjóra og fundarritara
Inntaka nýrra félaga.
Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
Kosning nefnda.
Önnur mál.

Við höfum verið með léttar veitingar en mögulega verður það eitthvað með breyttu sniði vegna sóttvarna.

Vonast til að sjá sem flesta.

f.h. Smaladrengja
Björn Ingi Björnsson
Formaður

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2021-2/

Aðalfundi frestað vegna samkomutakmarkana

því miður þá er aðalfundi sem átti að vera á fimmtudaginn 25.3.2021 frestað um óákveðinn tíma vegna samkomutakmarkana sem tekur gildi í kvöld. Sjá nánar á covid.is

Við munum endurskoða stöðuna um miðjan apríl og boða þá til nýs fundar ef hægt verður.

kv. Björn Ingi Bj.
Formaður

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundi-frestad-vegna-samkomutakmarkana/

Aðalfundur 2021

Aðalfundur Vélhjólafélags Smaladrengja verður haldinn kl 18:00 fimmtudaginn 25. mars 2020 í Smalakofanum, klúbbhúsi okkar að Borgarteig, en gengið inn Borgargerðismegin.
Förum eftir sóttvarnarreglum og reynum að virða fjarlægðarmörk og andlitsgrímur eins og unnt er.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

Kosning fundarstjóra og fundarritara
Inntaka nýrra félaga.
Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
Kosning nefnda.
Önnur mál.

Við ætlum að reyna að vera með léttar veitingar eins og undanfarin ár, en það getur verið með breyttu sniði. 🙂

Vonast til að sjá sem flesta.

f.h. Smaladrengja
Björn Ingi Björnsson
Formaður

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2021/

Óvissuferð 4.7.2020 – Aflýst

Óvissuferð er á dagsskrá á morgun. – ferðinni var aflýst.

skráning er inná Facebook, eða með því að senda tölvupóst á smaladrengir(hja)gmail.com, einnig má svara SMS skilaboðum sem voru send út.
ferðin verður ekki farin nema skráðir séu 4-5 manns í það minnsta.

Brottför yrði 10:30 frá Smalakofanum ef mæting næst.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/ovissuferd-4-7-2020/

Fornbíla og mótorhjólahittingur 17. júní

Fornbíla og mótorhjólahittingur á plani Skagfirðingabúðar á Sauðárkróki 17. júní kl 14:00

Ég vona að sem flestir félagsmenn og aðrir gestir sjái sér fært að mæta með sín mótorhjól.

Eftir hittinginn tökum við smá rúnt saman, ferðaplön ákveðin á staðnum.

kv. Formaðurinn.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fornbila-og-motorhjolahittingur-17-juni/