Gauksmýri

Það verður hjólað að Gauksmýri n.k. miðvikudag, 28.ágúst.  Lagt verður af stað frá N1, á Sauðárkróki kl. 18. stundvíslega.  Við ætlum að fá okkur að borða að Gauksmýri.  Í boði er hlaðborð bæði með fiski og kjöti.sem kostar 4250 kr (ca)  ;O)   Svo verður hjólað heim aftur að af loknum kvöldverðinum.  Ef einhverjir vilja gista, þá er ekkert mál að ath. með að fá gistingu fyrir þá sem það vilja.  Þeir sem það ekki vita, þá er rekið ferðamanna fyrirtæki að Gauksmýri, gisting, matur, hestamennska og eitthvað fleira.  Gauksmýri er staðsett rétt austan við Hvammstanga afleggrann, svo þetta er ca. klukkutíma akstur frá Sauðárkróki.

Þeir sem ætla að koma með eru vinsamlega beðnir að skrá sig hjá Trausta Jóel, síma 862 6242 eigi síðar en kl. 19, þriðjudaginn 27.ágúst.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/gauksmyri/

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.