Maddömurnar sem tóku á móti okkur 19.06

DSCN0584

Þær klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn,  kaffi og vöflur með rjóma,  hvað gæti það verið betra ?

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/maddomurnar-sem-toku-a-moti-okkur-19-06/

Fallið myndir frá 19. júní

Það voru 21 hjól sem komu í Varmahlíð að Fallinu í sól og fallegu veðri.  Gísli Gunnarson fór svo með hugvek talaði um jónsmessu sem tengd er afmæli Jóhanesar skírara og sólstöðum  flutti svo bæn eins og honum er einum lagið og óskaði konum til hamingju með kvennréttindadaginn.  Að því loknu dóluðum við okkur í RÓLEGHEITUNUM í bæinn og vil ég sérstaklega þakka ökumönnum fyrir að aka á eða aðeins undir löglegum ökuhraða þá verður hópurinn alltaf þéttari og flottari og menn njóta betur stundarinnar.  Að lokum vil ég sérstaklega þakka prúðbúnu Madömunum sem tóka glæsilega á móti okkur eins og alltaf en þó í þetta skipti opnuðu þær sérstaklega fyrir okkur.  Kærar þakkir fyrir skemmtilegt og svolítið hátiðlega stund eins og alltaf.  Svavar #76.  Læt myndir frá kvöldinu fljóta með þær tala sínu máli.DSCN0556 DSCN0557 DSCN0558 DSCN0559 DSCN0564 DSCN0563 DSCN0562 DSCN0561 DSCN0565 DSCN0560 DSCN0566 DSCN0567 DSCN0568 DSCN0569 DSCN0570 DSCN0571 DSCN0572 DSCN0573 DSCN0574 DSCN0579 DSCN0578 DSCN0577 DSCN0576 DSCN0575 DSCN0580 DSCN0581 DSCN0582 DSCN0583 DSCN0584

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fallid-myndir-fra-19-juni/

Laugardagurinn 20 júní

Laugardagurinn 20. júní. Sumarsólstöðuferð að kveldi. Hittumst á Hofsósi við Pardus kl. 22:00.  Farið frá N1 á Sauðárkróki kl. 21.30  En við mætum aðeins fyrr og tökum létt spjall um lífið og tilveruna gott að nota svona hálftíma í að leysa heimsmálin

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/laugardagurinn-20-juni/

Föstudagurinn 19 júni

Þá er það næsti föstudagur, 19 júní  þá förum við að Fallinu eins og undanfarin sumur,  það eru 10 ár frá vigslu þessa flotta listaverk eftir Heidda  nú vonast ég til að sjá alla sem mótorhjóli geta valdið þetta kvöld.  Þeir sem ætla að fara í hóp í varmahlíð frá Króknum mætið á N1 fyrir kl 19.30.    Gísli Gunnarsson prestur fer með hugvekju eins og undanfarin ár við Fallið  kl 20.00 og við rúllum okkur svo í RÓLEGHEITUNUM á Sauðárkrók og leggjum hjá Maddömmunum,  þær ætla að taka á móti okkur með kaffi og meðlæti.  Endilega látið þá vita sem eru að hjóla eins þó þeir séu ekki í okkar hópi þar sem þetta snertir okkur öll.  Farið varlega í umferðinni.  Kveðja Svavar #76.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fostudagurinn-19-juni/

17. júní.

Við fórum á sex hjólum hringinn í fyrðinum,  löbbuðum svo uppá íþróttasvæði og fylgdumst með hátaðarhöldunum í flottu veðri (17°C) í Blönduhlíðinni.

DSCN0554 DSCN0555

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/17-juni/