Aðalfundur 2020

Aðalfundur Vélhjólafélags Smaladrengja verður haldinn kl 18:00 föstudaginn 29. maí 2020 í Smalakofanum, klúbbhúsi okkar að Borgarteig, en gengið inn Borgargerðismegin.
Spritt og handþvottur verður í boði í anddyri og við reynum að virða 2m tilmælin eins og unnt er.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

Kosning fundarstjóra og fundarritara
Inntaka nýrra félaga.
Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
Kosning nefnda.
Önnur mál.

Við ætlum að reyna að vera með léttar veitingar eins og undanfarin ár, en spurning hvort það verði með einhverju breyttu sniði.
sjáum til hvað við getum og gerum 🙂

Vonast til að sjá sem flesta.

f.h. Smaladrengja
Björn Ingi Björnsson
Formaður

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2020/