Fimmtudagurinn 17.05

Fimmtudagsrúnturinn í gær endaði með að við hjóluðum á fjórum hjólum í Varmahlíð, fórum yfir Vatnskarð í pínu frosti (Eins gott að vera ekki eins og horaður köttur þegar að lagt er í svona túr)   út Langadal í Blöndós……KAFFITongue out þaðan yfir þverárfjall (aftur pínu frost) og aftur heim á Krók með smá stoppi á leiðinni (undirritaður að verða bensínlaus). 

Stopp hjá Bjarna Har (bensín) og þaðan heim.  Helstu kjaftasögur í bænum voru ræddar og fleirra spennandi sem maður fær ekkert að vita um nema með að mæta Cool.

Takk fyrir skemmtilegan rúnt og sjáumst á næsta fimmtudag kveðja Svavar #76.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fimmtudagurinn-17-05/

Skoðunardagur

Betra er seint en ekki,  en það er skoðunardagur hjá Frumhérja og 50 % afsláttur í dag.Þegar að undirritaður var á staðnum um 11.30 þá grillaði Böddi pilsur eins og honum er einum lagið og bauð uppá gos með.  Vonandi ná sem flestir að fara með hjólin í dag.

Kveðja.

Svavar Sig. 

 

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/skodunardagur/

Fimmtudagsrúnturinn

Fimmtudags rúnturinn.  Cool

Við tökum stutta rúnta á fimmtudagskvöldum.  Hittumst kl 20.00 á N1.

Svo fer eftir veðri og áhuga hvert við förum. 

Látið sjá ykkur kveðja

Svavar Sigurðsson.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fimmtudagsrunturinn-2/

Facebook.

Mig langaði bara að benda fólki á að það er komin facebook síða fyrir Smaladrengina. Endilega skráið ykkur á hana ;O) Svavar Sigurðsson

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/facebook/

Sumardagurinn fyrsti

Árleg bænnastund á Sumardaginn fyrsta var haldin við minnismerkið Fallið í Varmahlíð. Félagar í Vélhjólafélagi Smaladrengja og Véhljólaklúbbi Skagafjardar auk annarra gesta mættu á 24 vélhjólum til bænastundarinnar sem Séra Gísli Gunnarsson annaðist. Veðrið var hið fegursta aðstæður til hjólamennsku akjósanlegar.

 

Að bænastundinni lokinni var haldið til Sauðárkróks, ekið um bæinn og endað í kaffi og lummum í Maddömukoti.  Að því loknu héldu ökumenn á 10 hjólum vestur yfir Þverárfjall með viðkomu á Skagaströnd og Blönduósi þaðan sem haldið var suður Langadal og endað á upphafsreit á Sauðárkróki. Vélhjólafélag Smaladrengja og Vélhjólaklúbur Skagafjardar þakka Maddömum fyrir frábærar móttökur í tilefni dagsins.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/sumardagurinn-fyrsti/