Árleg bænnastund á Sumardaginn fyrsta var haldin við minnismerkið Fallið í Varmahlíð. Félagar í Vélhjólafélagi Smaladrengja og Véhljólaklúbbi Skagafjardar auk annarra gesta mættu á 24 vélhjólum til bænastundarinnar sem Séra Gísli Gunnarsson annaðist. Veðrið var hið fegursta aðstæður til hjólamennsku akjósanlegar.
Að bænastundinni lokinni var haldið til Sauðárkróks, ekið um bæinn og endað í kaffi og lummum í Maddömukoti. Að því loknu héldu ökumenn á 10 hjólum vestur yfir Þverárfjall með viðkomu á Skagaströnd og Blönduósi þaðan sem haldið var suður Langadal og endað á upphafsreit á Sauðárkróki. Vélhjólafélag Smaladrengja og Vélhjólaklúbur Skagafjardar þakka Maddömum fyrir frábærar móttökur í tilefni dagsins.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/sumardagurinn-fyrsti/
Árleg bænastund við Fallið í Varmahlíð fer fram á fimmutdag, Sumardaginn fyrsta, kl. 13:30. Gert er ráð fyrir mætingu á staðinn upp úr kl. 13:00. Að lokinni bænastund, undir stjórn Séra Gísla Gunnarssonar, verður haldið á Krókinn og endað við Maddömmukot.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/sumardagurinn-fyrsti-2/
| Aðalfundur Smaladrengja 2012 verður haldinn í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki miðvikudaginn 25 apríl kl 19:00.
Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
• Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
• Lagabreytingar.
• Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
• Kosning nefnda.
• Önnur mál.
Boðið verður upp á pizzur og með því og þurfa menn ekki að óttast að svelta á þessum fundi.
Pétur Ingi Björnsson
Formaður |
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2012/

Til sölu er Suzuki Intruder 1500 árg ´05 ekið aðeins 1927 mílur. Hjólið er því eins og nýtt. Ásett verð er 1.450 þús. kr. Nánari upplýsingar gefur Jón Magnússon í síma 894 0950.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/suzuki-intruder-1500-til-solu/
Húnavaka hefst laugardaginn 16. júlí. Smaladrengir eru inn í dagskrá á plani milli 13-16. Gott væri að fara frá Sauðárkróki kl 13 og hittast við Léttitækni fyrir kl 14,
keyra um bæinn og enda svo á plani við félagsheimilið þar sem hjólin verða til sýnis.
Ferðanefndin. |
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/hopakstur-a-hunavoku/