Sumardagurinn fyrsti

Árleg bænnastund á Sumardaginn fyrsta var haldin við minnismerkið Fallið í Varmahlíð. Félagar í Vélhjólafélagi Smaladrengja og Véhljólaklúbbi Skagafjardar auk annarra gesta mættu á 24 vélhjólum til bænastundarinnar sem Séra Gísli Gunnarsson annaðist. Veðrið var hið fegursta aðstæður til hjólamennsku akjósanlegar.

 

Að bænastundinni lokinni var haldið til Sauðárkróks, ekið um bæinn og endað í kaffi og lummum í Maddömukoti.  Að því loknu héldu ökumenn á 10 hjólum vestur yfir Þverárfjall með viðkomu á Skagaströnd og Blönduósi þaðan sem haldið var suður Langadal og endað á upphafsreit á Sauðárkróki. Vélhjólafélag Smaladrengja og Vélhjólaklúbur Skagafjardar þakka Maddömum fyrir frábærar móttökur í tilefni dagsins.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/sumardagurinn-fyrsti/

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.