Landsmótsnefnd Rafta hvetur hjólara til að taka þátt í stærsta viðburði bifhjólafólks á árinu hérlendis. Allt er að verða klárt í magnað landsmót, uppfullt af leikjum, mat, drykk og tónlistarviðburðum og fleiru skemmtilegu. Upplýsingar um mótið er á heimasíðu Rafta www.raftar.is og á Fésbókarsíðu og er þá nóg að slá inn í leit Raftar eða Landsmót. |
Jun 08
Landsmót bifhjólafólks
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/landsmot-bifhjolafolks/
Jun 08
Hvítasunnuferð
Farin verður ferð til Eyjafjarðar laugardaginn 11. júní. Farinn verður Tröllaskagahringurinn frá Sauðárkróki um Fjallabyggð og ekið um Eyjafjörð. Farið verður til baka um Öxnadalsheiði. Lagt verður af stað frá N-1 á Blönduósi kl. 09:20, frá N-1 Sauðárkróki kl. 10:00 og frá Olís á Sigló kl. 11:30.
Ferðanefndin
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/hvitasunnuferd/
Jun 05
Bilun í SMS sendingu
Vegna bilunar í SMS sendingum fór það útkall sem átti að fara í gær eins og stefnt var að ekki á stað. Við vonum að flestir okkar hafi lesið heimasíðuna og mæti við N1 á eftir.
Stjornin |
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/bilun-i-sms-sendingu/
Jun 04
Hjólabræður heimsækja Sauðárkrók
Sjómannadagurinn 5. júní
Hjólabræður heimsækja Sauðárkrók. Þeir koma frá Siglufirði og leggja af stað þaðan kl. 10:00. Siglfirðingar fylgja þeim í Skagafjörð og mælum við með því að Smaladrengir á svæðinu taki á móti „bræðrum“ okkar á Hofsósi kl 11:00. Farið verður frá N1 á Sauðárkróki kl 10:30. Munið að skrá ykkur í ferðina með því að svara sms skeytinu sem þið fenguð. Stjórnin |
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/hjolabraedur-heimsaekja-saudarkrok/
May 25
Honda VTX 1300 árg. 2006 til sölu
Til sölu: HONDA VTX 1300 S
Árg.2006. Litur svartur. Ekið:14.000 km.
Hlaðið aukahlutum ss. Honda leðurtöskur, gler + sissy og bögglaberi.
Slatti af aukakrómi.
Nýleg dekk.
Skoðað 2012
Hjólið lítur út sem nýtt.
Verð kr: 1.400.000
Upplýsingar gefur Óli Þór í síma: 863-5306 og á thor31@simnet.is
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/honda-vtx-1300-arg-2006-til-solu/