Ferðaáætlun 2020

Ferðaáætlun fyrir 2020 er komin inn á vefinn undir Ferðaáætlanir.

Eins og rætt var á aðalfundi þá verður áætlunin með miklu einfaldara sniði en áður og nú förum við einnig að boða til fimmtudagsrúnta. þar er mottóið ennþá það sama að þeir mæta sem geta og vilja og ferðaplön eru ákveðin á staðnum af þeim sem mæta.

kv. Formaðurinn.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/ferdaaaetlun-2020/

Aðalfundur 2020

Aðalfundur Vélhjólafélags Smaladrengja verður haldinn kl 18:00 föstudaginn 29. maí 2020 í Smalakofanum, klúbbhúsi okkar að Borgarteig, en gengið inn Borgargerðismegin.
Spritt og handþvottur verður í boði í anddyri og við reynum að virða 2m tilmælin eins og unnt er.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

Kosning fundarstjóra og fundarritara
Inntaka nýrra félaga.
Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
Kosning nefnda.
Önnur mál.

Við ætlum að reyna að vera með léttar veitingar eins og undanfarin ár, en spurning hvort það verði með einhverju breyttu sniði.
sjáum til hvað við getum og gerum 🙂

Vonast til að sjá sem flesta.

f.h. Smaladrengja
Björn Ingi Björnsson
Formaður

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2020/

Aðalfundi frestað um óákveðin tíma

Kæru Smalar,

Stjórn Vélhjólafélags Smaladrengja hefur tekið ákvörðun um að fresta aðalfundi sem halda hefði átt í mars mánuði um óákveðin tíma. Það er okkar mat að á meðan samkomubann er við gildi og þessi Coronu faraldur gengur yfir landið og heimsbyggðina alla að það sé óskynsamlegt að boða til fundar. Við munum endurskoða málið eftir sirka þrjár vikur. Ef ástandið hefur eitthvað skánað þá verður hægt að auglýsa fund, sem væri þá haldinn í síðustu viku apríl mánaðar. Þetta eru okkar björtustu vonir en ef ástandið verður eins eða verra munum við þurfa að endurskoða málið.
Bestu kveðjur,
f.h. Smaladrengja.
Björn Ingi Björnsson – Formaður.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundi-frestad-um-oakvedin-tima/

Skyndiferð – Slúttferð 22.9.2019

Kæru Smalar.
Nú endum við sumarið á skyndiferð á Siglufjörð.

Brottför kl 12:00 frá N1 Ábæ á Sauðárkróki
Slúttum sumrinu með smá rúnit.
Vonast til að sjá sem flesta.
kv. Formaðurinn.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/skyndiferd-sluttferd-22-9-2019/

Fimmtudagsrúntur 5.9.2019

Brottför um kl 19:30 frá Smalakofanum.
ferðaplön verða ákveðin á staðnum.

kv. Formaðurinn.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fimmtudagsruntur-5-9-2019/